Opið fyrir umsóknir í myndlistarsjóð - seinni úthlutun 2023

03.07.2023
Blue box

Umsóknarfrestur seinni úthlutunar úr myndlistarsjóði árið 2023 er til kl. 16:00 mánudaginn 21. ágúst. Hlutverk myndlistarsjóðs er að veita verkefnastyrki til undirbúnings verkefna og til að auðvelda framkvæmd verkefna á sviði listsköpunar og listrannsókna.

Veittir verða styrkir í þremur flokkum:

• Undirbúningsstyrkir – veittir til undirbúnings og þróunar viðamikilla verkefna sem síðar er hægt að sækja um styrk til framkvæmdar.

• Sýningarverkefni – viðburðir sem fara fram á afmörkuðu tímabili með skilgreint upphaf og endi.

• Útgáfustyrkir, rannsóknarstyrkir og aðrir styrkir – veittir til rannsókna á verkum íslenskra listamanna og til útgáfu rita um íslenska listasögu og verk myndlistarmanna auk annarra verkefna sem ekki falla undir aðra liði.

Lágmarksupphæð styrkja er 300.000 kr og hámarksupphæð er 3.000.000 kr. Myndlistarsjóður veitir allt að 70% af áætluðum heildarkostnaði verkefna og því þarf umsækjanda að brúa 30% mótframlag.

Til úthlutunnar eru 25,5 milljónir og tilkynnt verður um niðurstöðu í september.

Nánari upplýsingar

Í umsókn er beðið um greinagóða lýsingu á verkefni, ferli þátttakenda, verkáætlun, kostnaðaráætlun og tilhögun fjármögnunar.

Vinsamlega athugið að myndlistarsjóður styrkir vinnu sérfræðinga, laun tæknimanna, efniskostnað, tækjakostnað, vef- og fjölmiðlakynningu, skráningu og ljósmyndatöku, hönnun og umbrot, prentkostnað og annað sem tengist verkefninu. Sjóðurinn styrkir ekki ferðalög, þókun til listamanna, rekstur vinnustofu eða veitingar í tengslum við viðburði.

Í þeim tilvikum sem sótt er um styrk vegna sýningarraða eða samsýninga hvetur myndlistarráð skipuleggjendur til þess að senda inn eina umsókn fyrir verkefnið í heild í stað umsókna frá einstökum sýnendum. Ef þátttakendur velja til að senda inn umsóknir fyrir sínu framlagi, þá er mælst til þess að ekki sé send inn umsókn vegna verkefnisins í heild.

Hafi umsækjandi hlotið styrk úr sjóðnum áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef greinargerð hefur verið skilað.

Umsóknir skulu vera á íslensku sé þess kostur, en annars má finna umsóknarform á ensku.

Leiðbeiningar um gerð umsókna, úthlutunarreglur, eyðublöð fyrir greinargerð ásamt lögum um sjóðinn má finna hér.

Myndlistarsjóður starfar samkvæmt lögum um myndlist 2012 nr. 64: https://www.althingi.is/lagas/152c/2012064.html

Ef upp koma fyrirspurnir varðandi umsóknarferlið, vinsamlegast sendið tölvupóst á info@myndlistarsjodur.is

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Um okkur