Árið 2025 mun Huet Repolt residesían í Belgíu bjóða íslenskum listamanni búsettum á Íslandi til vinnustofudvalar.
Vinnustofudvölin mun standa yfir í 8 vikur, frá 15. febrúar til 13. apríl 2025.
Tekið verður við umsóknum til miðnættis 26. ágúst.
Vinsamlega sendið umsókn í gegnum tölvupóst: application@residencehuetrepolt.org
Niðurstöður úr valferlinu verða birtar opinberlega í síðasta lagi 15. september.
Valinn listamaður mun skuldbinda sig til að vera viðstaddur á staðnum í að minnsta kosti 7 vikur.
Vinnustofudvölin er opin öllum listamönnum sem hafa lokið námi.
Tekið er við umsóknum frá stökum listamönnum eða tvíeykjum og er ekkert aldurstakmark.
Húsið er 120 m² með stofu / eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, þakverönd, baðherbergi, þvottahúsi og bílskúr.
Það er staðsett í Watermael-Boitsfort, 4 km frá miðbæ Brussel.
Listamaðurinn hlýtur 1500 evrur til framleiðslu verka.
Boðið er upp á að listamenn taki fjölskyldu sína með en beðið er um að þess sé getið í umsókn.
Nánari upplýsingar um residensíuna, myndir ofl. má finna á heimasíðu Huet Repolt.