Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir
Kjarvalsstaðir voru teknir í notkun árið 1973 og er fyrsta byggingin hérlendis sem hönnuð er sérstaklega fyrir myndlist. Á Kjarvalsstöðum eru reglulega sýningar á verkum Jóhannesar S. Kjarvals (1885 -1972) enda skipar hann sérstakan sess í íslenskri menningar- og listasögu sem einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar fyrr og síðar.
Þar eru jafnframt sýningar á málverkum og skúlptúrum eftir nafnkunna innlenda og erlenda meistara nútímalistar. Gluggar hússins ná frá gólfi og upp í loft svo vel sést yfir Klambratún sem var sérstaklega hannað og skipulagt sem hluti af listrænni menningu Reykjavíkurborgar.