Álög
Sigrún Hrólfsdóttir
Sigrún Hrólfsdóttir skapar list í margvíslega miðla, málverk, teikningu, innsetningar og gjörningalist, sem fjallar um sýnileg og ósýnileg öfl í heiminum.
Síðustu sýningar hennar: Frá Innri-Fagradal, Ósýnilegir litir og Veit andinn af efninu? hverfðust um hugtök á borð við serótónín, oxýtósín, dópamín og önnur efni í líkamanum, en einnig ást, jarðefnaeldsneyti, gjaldmiðla og hið stafræna líf.
Glerhúsið er listamannarekið gallerí til húsa í millihúsi við Vesturgötu 33b. Það var stofnað 18. júní 2022. Álög / Spell, sýning Sigrúnar, er áttunda sýning þess.
Glerhúsið er opið á sunnudögum kl. 14.00 - 17.00 og flestum almennum frídögum.
Listamaður: Sigrún Hrólfsdóttir