D51 Sadie Cook og Jo Pawlowska: Allt sem ég vil segja þér

Samsýning / Group Exhibition

D51 Sadie Cook og Jo Pawlowska: Allt sem ég vil segja þér


Á 51. sýningu D-sal sýningarraðarinnar tekur á móti þér gífurlegt magn ljósmynda og kvikra mynda í nýrri innsetningu eftir Sadie Cook og Jo Pawlowska. Myndefnið inniheldur sviðsetta drauma, bjöguð vídeó, skjáskot af samtölum á síðkvöldum, pixlaðar sjálfur og læknaskýrslur.

Samstarf Sadie Cook og Jo Pawlowska spratt upp af því að hvort um sig var með snoðkoll. Það þróaðist áfram í samtölum um hár, sjálfið, sjálfsmynd, uppbrot línulegrar framvindu og internetið. Listrænt samkrull hófst fyrir alvöru einn sólskinsdag í maí 2024 þegar Jo tók fyrsta skammtinn af testósteróni á meðan Sadie dýfði fótunum í slím og smellti af mynd á bleika plastmyndavél. Sýningin Allt sem ég vil segja þér er afrakstur árs langrar samvinnu þar sem hvert verk er eignað báðum listamönnum.

Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.

Listamaður: Samsýning / Group Exhibition

Sýningarstjóri: Björk Hrafnsdóttir

Dagsetning:

29.05.2025 – 30.07.2025

Staðsetning:

Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginSýningHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Opið alla daga: 10:00 – 17:00

Fimmtudagar opið til kl. 22:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5