Grafísk gildi

Samsýning / Group Exhibition

Grafísk gildi

Orðið grafík kemur úr grísku og þýðir að skrifa, teikna eða rista. Notaðar eru ýmsar mismunandi aðferðir við gerð grafíklistaverka og hefur hver aðferð sín ákveðnu einkenni og eiginleika. Sérstaða grafíkverka felst í möguleikum þeirra til fjölföldunar, þ.e.a.s. gera mörg eintök af sömu mynd.

Markmið sýningarinnar er að fræða safngesti um grafíklistina og kynna valin grafíkverk úr safneign Listasafnsins. Verkin eru af ýmsum toga og eftir ólíka listamenn, bæði innlenda og erlenda. Þá gefst safngestum einnig tækifæri til að doka við í sýningarrýminu og skapa sína eigin list í hvetjandi umhverfi. Að skapa í listasafni er einstök upplifun og nota má verkin á veggjunum sem innblástur í eigin sköpun, blanda saman litum, línum, formum og áhrifum úr ólíkum verkum.

Listamaður: Samsýning / Group Exhibition

Sýningarstjóri: Heiða Björk Vilhjálmsdóttir

Dagsetning:

31.08.2024 – 02.02.2025

Staðsetning:

Listasafnið á Akureyri

Kaupvangsstræti 8, 600 Akureyri, Iceland

Merki:

NorðurlandSýning

Opnunartímar:

júní-ágúst 10 — 17 alla daga

september-maí

12 — 17 alla daga

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Um okkur