Samferðamaður
Gunnar V. Andrésson

Á sýningunni "Samferðamaður" er farið yfir ríflega fimmtíu ára feril Gunnars V. Andréssonar fréttaljósmyndara – frá 1966 til 2017.
Myndir hans sem birtar voru í dagblöðunum Tímanum, Vísi, DV (Dagblaðinu Vísi), Fréttablaðinu og á fréttavefnum visir.is, eru ómetanleg heimild um íslenskt þjóðlíf. Sýningin er sett upp á þann hátt að áhorfandinn gengur í gegnum tímann, ef svo má segja. Myndirnar eru sveipaðar tíðaranda hvers skeiðs fyrir og sýna glöggt breytingarnar sem urðu á tímabilinu – hvort sem er á umhverfi eða hinum ýmsu sviðum samfélagsins.
Horft er á Gunnar sem samferðarmann fólksins sem hann myndaði – fólks hvaðanæva að úr mannlífi líðandi stundar. Tilefnin eru ánægjuleg jafnt sem sorgleg. Einkum eru spor samferðamannsins skýr þegar skoðaðar eru myndir hans af fólki sem stóð í stafni opinbers lífs yfir langt skeið. Nefna má myndir hans af fyrrum forsetum Íslands þeim Vigdísi Finnbogadóttur og Ólafi Ragnari Grímssyni sem spanna upp undir fjögurra áratuga tímabil og hafa því mikið sögulegt vægi. Svo löng kynni ljósmyndara og viðfangs ljá ljósmyndunum auk þess meiri blæbrigði og dýpt.
Gunnar V. Andrésson fæddist í Reykjavík 1950 og starfaði sem fréttaljósmyndari í ríflega fimmtíu ár. Hann hóf ferilinn hjá Tímanum árið 1966 þar sem hann var til 1978. Þaðan fór hann yfir á Vísi og eftir sameiningu Vísis og Dagblaðsins síðla árs 1981 varð hann ljósmyndari DV (Dagblaðsins Vísis) til 2003 þegar starfsemi útgáfufélags Frjálsrar fjölmiðlunar lauk. Þá varð hann ljósmyndari á Fréttablaðinu og fréttavefnum visir.is fram til loka starfsferils síns 2017.
Myndasafn Gunnars frá árunum þegar hann starfaði á DV, Fréttablaðinu og fréttavefnum visir.is auk nokkurra myndataka frá Tímaárunum er varðveitt í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Listamaður: Gunnar V. Andrésson