Huglendur

Bjarni Sigurbjörnsson

Bjarni Sigurbjörnsson, Huglendur, Listasafn Reykjanesbæjar, 2024

Með pentskúfi, en án fyrirhyggju, markar Bjarni fyrir striki eða stroku; sérhvert þessara ummerkja er vitnsburður um líkamlegt inngrip hans í veruleika myndflatarins, ekki tilraun til að draga upp „mynd“ af einhverju sem við teljum okkur þekkja í raunheimi. Í þeim gjörningi sem sérhvert verk er, renna líkamlegur veruleiki listamannsins – hreyfikraftur hans – og tjáning þessa sama krafts, saman við andlega kjölfestu hans og mynda heild sem er fullkomlega merkingarbær í sjálfri sér, þarfnast hvorki myndlíkinga né táknrænna útlistana til að lifa af það sem það sem sænski hönnuðurinn Sven Lundh kallaði „áreiti augans“.  - Aðalsteinn Ingólfsson, sýningarstjóri  Bjarni Sigurbjörnsson (1966) útskrifaðist með MFA-gráðu í myndlist frá San Francisco Art Institute, Bandaríkjunum, árið 1996 og BFA-gráðu frá sama skóla árið 1992. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og verið valinn á samsýningar víða. Bjarni hefur kennt við alla helstu listaskóla landsins og staðið fyrir eigin námskeiðum, ásamt því að sitja í ýmsum myndlistarnefndum og stjórnum.

Listamaður: Bjarni Sigurbjörnsson

Sýningarstjóri: Aðalsteinn Ingólfsson

Dagsetning:

05.09.2024 – 05.01.2025

Staðsetning:

Listasafn Reykjanesbæjar

Duusgata 2-8, 230 Reykjanesbær, Iceland

Merki:

SuðurlandSýning

Opnunartímar:

MánudagurLokað
Þriðjudagur12:00 - 17:00
Miðvikudagur12:00 - 17:00
Fimmtudagur12:00 - 17:00
Föstudagur12:00 - 17:00
Laugardagur12:00 - 17:00
Sunnudagur12:00 - 17:00
Bjarni Sigurbjörnsson, Huglendur, Listasafn Reykjanesbæjar, 2024

Bjarni Sigurbjörnsson, Huglendur, Listasafn Reykjanesbæjar, 2024

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Um okkur