Páll Ivan hangir í Sjoppunni

Páll Ívan frá Eiðum

Páll Ivan hangir í Sjoppunni, 2024.

Sjoppan er nýtt tilraunarými í Gallery Port þarsem allskonar myndlistarfólk sýnir ný og nýleg verk — bland í poka — sýna það sem á hug þeirra um þessar mundir.

Fyrstur til að hanga í Sjoppunni er Páll Ivan frá Eiðum sem sýnir nýjar teikningar og kallar það Óspilandi helvíti.  „Lengst framan af var ég tónskáld og tónlistarmaður en af einhverjum ástæðum tók myndlistin öll völd. Undanfarið hef ég reynt að verða tónskáld aftur og planið er að teikna mig aftur inn í tónsmíðarnar.

Mér hefur enn ekki tekist að semja einhver mögnuð tónverk en þessar teikningar eru kannski skref í rétta átt”.  Páll Ivan frá Eiðum hefur látið til sín taka í íslensku listalífi á ýmsum sviðum eins og td. tónsmíðum, hljóðfæraleik, gjörningum, hönnun, ritlist og internetgríni.

Listamaður: Páll Ívan frá Eiðum

Dagsetning:

07.09.2024 – 28.09.2024

Staðsetning:

Gallery Port

Hallgerðargata 19-23, 105 Reykjavík, Iceland

Merki:

HöfuðborgarsvæðiðSýning

Opnunartímar:

MánudagurLokað
ÞriðjudagurLokað
Miðvikudagur11:00 - 17:00
Fimmtudagur11:00 - 17:00
Föstudagur11:00 - 17:00
Laugardagur11:00 - 16:00
SunnudagurLokað

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Um okkur