Brúna tímabilið
Ragnar Kjartansson
'-2014-2000x1125.jpg&w=2048&q=80)
Í tveimur sýningarrýmum í i8 Granda sýnir listamaðurinn ný verk í bland við eldri. Sýningin er sjötta einkasýning Ragnars í i8.
'Brúna tímabilið' er árslöng sýning þar sem fikt og tilraunamennska ráða ríkjum. i8 Grandi er einungis spölkorn frá vinnustofu Ragnars og mun hann því nýta salina sem afkima vinnustofunnar, tilraunaeldhúskrók. Verkum verður skipt út nokkuð oft og mun sýningin því verða síbreytileg þetta ár sem hún stendur. Það er engin hugmyndafræði á bakvið Brúna tímabilið. Dótakassi fyrir nýtt dót og gamalt dót.
Á fjórðu sýningu 'Brúna tímabilsins' eru verkin 'Listgyðjur, slatti af þeim' frá 2019 og 'Steik (Tilbrigði við Meat Joy)' frá 2013.
'Steik (Tilbrigði við Meat Joy)' er óður, til verks Carolee Schneeman 'Meat Joy 'frá árinu 1964. Í verki Carolee, sem var frumkvöðull á sviði femíniskar listar og gjörningalistar, ræður ótamin nautnin ríkjum. En í verki sínu 'Steik (Tilbrigði við Meat Joy)' snýr Ragnar stemningunni á haus og sviðsetur formlegheit og aga. Verkið var upprunalega flutt, sem hluti af BMW Tate Live seríunni í Tate Modern í London. Í verkinu eru tíu þátttakendur, þar á meðal listamaðurinn, uppstrílaðir í leikmynd sem er herbergi í Rococo stíl. Þátttakendurnir borða steikur, frekar seigar, bornar fram án meðlætis eða drykkjar. Niðurbælt smjattið ómar um rýmið. Sérhvert kropp og skurður í steik er magnað upp með hljóðnemum og einhæfni máltíðarinnar er í aðalhlutverki út verkið sem er 23 mínútur og 11 sekúndur að lengd. Þegar allir eru búnir með steikina sína er verkinu lokið.
Í fremri sýningarsalnum og inn í innra rýmið hefur verið raðað upp verkinu 'Listgyðjur, slatti af þeim'. Þetta eru skúlptúrísk málverk í gráum litaskala sem vísa í form og „tilvistarlega” stöðu leikmyndarinnar. Verkin voru fyrst sýnd árið 2019, sem hluti af einkasýningu Ragnars í Kunstmuseum Stuttgart. Þau geisla af fáránleika feðraveldisins jafnt sem skapandi orku í brussugangi stingsagar og pensils listamannsins. Hugleiðingar um fáránleika og fegurð menningar okkar í formi klassískra gyðjumynda.
Ragnar fæddist inn í leikhúsfjölskyldu og notar gjarnan leikræn tilþrif og sviðsetningu í verkum sínum. Hann flakkar auðveldlega á milli ólíkra listforma, gerir tónlistina að höggmynd, málverkið að gjörningi og kvikmyndina að uppstillingu. Rauði þráðurinn er alltaf gaumgæfileg athugun á mannlegu eðli, marglaga tilfinningar, félagslegar víddir og hinir mótsagnakenndu þættir sem hversdagslíf okkar allra samanstendur af.
Sýningar í i8 Granda standa mun lengur en vaninn er hjá söfnum og galleríum og eru helgaðar hugmyndum um tíma og rúm. Hinn langi sýningartími skapar rúm fyrir listamennina til að íhuga hvernig tíminn mótar verk þeirra og flæðið hvetur áhorfendur til að heimsækja breytilegar innsetningarnar aftur og aftur. 'Brúna tímabilið' er fjórða heilsárssýningin í i8 Granda og kemur á eftir sýningum Andreas Eriksson árið 2024, B. Ingrid Olson árið 2023 og Alicja Kwade árið 2022.
Listamaður: Ragnar Kjartansson