Myndlistarráð stendur fyrir málþingi í formi pallborðs undir yfirskriftinni Íslensk myndlistarstefna sem hefjast mun í Iðnó, fimmtudaginn 20. febrúar kl. 18:00.
Stutt erindi um mikilvægi setningar íslenskrar myndlistarstefnu og opnar umræður með fyrirlesurum
Með framsögu á málþinginu fara :
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra Helgi Þorgils Friðjónsson, formaður myndlistarráðs Anna Eyjólfsdóttir, formaður SÍM Páll Haukur Björnsson, myndlistarmaður
Fundarstjóri er Guðrún Sóley Gestsdóttir
Afhending Íslensky myndlistarverðlaunanna hefst kl. 20:00 og boðið verður upp á létta tóna og veitingar yfir fordrykk frá kl. 19:30. Húsið opnar kl. 19:00
Myndlistarmenn sem tilnefndir eru sem Myndlistarmaður ársins eru:
Anna Guðjónsdóttir fyrir Hluti í stað heildar í Listasafni Reykjavíkur Guðjón Ketilsson fyrir Teikn í Listasafni Reykjanesbæjar Hildigunnur Birgisdóttir fyrir Universal Sugar í Listasafni ASÍ Ragnar Kjartansson fyrir Figures in Landscape í i8
Myndlistarmenn sem tilnefndir eru til Hvatningarverðlauna ársins eru:
Claire Paugam Emma Heiðarsdóttir Sigurður Ámundason