Upplýsingar fyrir styrkhafa
Skilmálar
Við kynningu þeirra verkefna sem fá styrk úr myndlistarsjóði ber að taka fram nafn myndlistarsjóðs hvort sem er rafrænt eða á prenti: Myndlistarsjóður / Icelandic Visual Arts Fund
Styrkþegum útgáfustyrkja ber að skila inn eintaki af útgáfum á skrifstofu sjóðsins.
Greiðsla styrkja
Styrkir eru greiddir þegar styrkhafi sendir beiðni um greiðslu ásamt upplýsingum um tilvísunarnúmer, kennitölu og bankaupplýsingar til info@myndlistarsjodur.is. Vinsamlega athugið að greiðsla getur tekið allt að 4-8 vikur.
Styrkir undir 800.000 krónum eru greiddir út í einu lagi.
Styrkir yfir 800.000 krónum eru afgreiddir í tveimur greiðslum. Fyrri greiðsla, 80% af heildarstyrkupphæð, er greidd eftir að beiðni berst og seinni greiðsla, 20%, er greidd út eftir að greinargerð hefur verið skilað inn vegna verkefnisins.
Sjái umsækjandi sér ekki fært að vinna verkefnið getur hann afþakkað styrkinn.
Greinargerðir og áfangaskýrslur
Greinargerðum skal skilað í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að verkefninu lýkur, nema um annað sé samið.
Greinargerð þarf að innihalda upplýsingar um:
- framvindu verkefnis sem hlaut styrk úr myndlistarsjóði, árangur þess og afrakstur.
- nýtingu styrks, sundurliðun kostnaðar, aðra styrki og tekjur.
- hvort forsendur verkefnis, markmið, verkáætlun, skipulag og kostnaður hafi breyst og þá hvers vegna.
Ef styrkir eru veittir til lengri tíma er skal skila árlegri áfangaskýrslu um framgang verkefnisins.
Hlekkur á greinargerð og áfangaskýrslu
Breytingar eða tafir á verkefninu
Sjái umsækjandi sér ekki fært að vinna verkefnið getur hann afþakkað styrkinn.
Séu tafir á verkefninu eru styrkþegar beðnir um að senda myndlistarsjóði upplýsingar um stöðu mála innan árs frá svarbréfi. Beiðni um frest skal vera rökstudd og send í tölvupósti á info@myndlistarsjodur.is. Jafnframt er heimilt að hafna umsóknum viðkomandi styrkþega um nýja styrki þar til úrbætur hafa verið gerðar að mati myndlistaráðs.
Heimilt er að krefjast endurgreiðslu hafi verkefni sem hlotið hefur styrk ekki verið unnið í samræmi við umsókn og þau gögn sem styrkveiting var byggð á, hafi verkefnið ekki verið unnið samkvæmt skilmálum sjóðsins eða greinargerð hafi ekki
Hafa samband: info@myndlistarsjodur.is